23febrúar

María Sigríður Halldórsdóttir

Elsku Maja pæja til hamingju með 17.ára afmælið þitt í dag, vona að þú fáir ökuskirteinið afhent í dag :O)


Eigðu frábæran dag og góðan og farsælan ökuferil...afmælisknús
23. febrúar 2009 klukkan 12:12
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
21febrúar

Elskulega vinkona :O)

Elsku besta vinkona Þórdís Jónsdóttir er 35.ára í dag, innilega til hamingju elsku besta með áfangann .... flottust.
Þórdís á Ögurballi 2007  :O) hahhaha



Þórdís sæta í Köben nóvember 2005

Vildi óska þess að ég gæti hlegið með þér í kvöld í partýjinu, en síðar mun ég gera það...skemmtu þér ógeðslega vel :O)
21. febrúar 2009 klukkan 13:27
Harpa Halldórsdóttir
2 athugasemdir
20febrúar

Ólinn :O)

Elsku Óli minn, til hamingju með daginn í dag sæti, þú verður flottari með hverju ári....hlakka til í kvöld :O)

20. febrúar 2009 klukkan 08:11
Harpa Halldórsdóttir
3 athugasemdir
19febrúar

Ágústa María Þórólfsdóttir

Elsku besta Ágústa María og foreldrar, innilega til hamingju með fyrstu tvö árin í dag :O)
Til hamingju með tveggja ára afmælið elsku sæta skottið mitt...þarf greinilega að fara að taka fleiri myndir af þér sæta :O)

 Ágústa María nýfædd
 Ágústa María 3 vikna
 Ágústa María 5 vikna
 5 mánaða
 9 mánaða
 10 mánaða
 18 mánaða
 21 mánaða

19. febrúar 2009 klukkan 12:11
Harpa Halldórsdóttir
3 athugasemdir
15febrúar

AFMÆLI



Elsku Halla systir á afmæli í dag...til lukku með daginn gamla :O) blink blink thííhííí..

Hafliði hefur verið lasinn í rúma viku núna, er samt allur að koma til, fékk e-h hita og kvef þessi elska ohh það er svo erfitt að horfa á svona lítil kríli kvefuð en við kíktum til barnalæknis ( bara til að vera viss ) til að fá hlustun varðandi RS vírusinn sem er að tröllríða öllu alltaf öðru hvoru, ekkert að heyra og er strákurinn hraustur að öllu öðru leyti :O)
Ferlegt að geta ekki sett hann út í vagn, hann er kominn í svo góða vagnarútínu eftir hádegi  ( 4 til 5 tímar í svefn ) og er pirraður ef hann nær ekki að sofa í vagninum sínum, sefur ekkert almennilega hérna inni, Líneik var líka svona þegar hún var lítil.
En hann er allur að braggast og svo hefur hlýnað líka þannig að hann fer út í vagn núna í vikunni.

Afmælishrina framundan....nóg að borða amk á næstu helgi he he he
15. febrúar 2009 klukkan 22:56
Harpa Halldórsdóttir
4 athugasemdir
08febrúar

SEX SEX SEX SEX SEX !!!

Kynlíf hjá fiskum !?!?!? Hvað er það ?

En málið er að Líneik hefur komið í nokkra daga til mín og segir að fiskarnir hennar séu alltaf að gera " ÞAÐ " það sé varla hægt að sofa,læra eða leika sér inn í herberginu hennar því þessi kynlífsiðkun fiskanna er greinilega svo hræðilega truflandi að annað eins hefur hvorki sést eða heyrst á þessu heimili  ( á ég að taka þetta inn á mig ? ) en þegar við mæðgur fórum reglubundið að fylgjast með þessum kynlífsfíklum komumst við að nokkru merkilegu.

Í fyrsta lagi eru þessir fiskar þeir sem Heiða mágkona kom með, spurning með uppeldið á því heimili í fiskabúrinu stóra !!! en þegar við fylgdumst með sáum við að karlinn fór að sópa öllum steinunum á botninum í búrinu til hliðar.

Daginn eftir ( eftir væntalega hávaðasama nótt hjá dóttur minni ) voru komin fullt fullt af eggjum á botninn, og við orðnar spenntar að sjá litlu krúttlegu fiskaunganna koma í heiminn...vorum búnar að ákveða að segja við þá alla "Halló litla fiskifýla" svona til að bjóða þá velkomna á heimilið.....

EN næsta dag þá var þetta allt búið, fiskarnir/foreldrarnir höfðu étið öll eggin...sorglegt en svona er þetta oft, kannski gerðu þau þetta því ég var alltaf að glápa á þau í fiskibúrinu, hvernig haldið þið að augun á mér líti út þegar þau sjá mig í gegnum vatnið ??? Hræðilega örugglega.
En málið er að núna bíðum við bara eftir næsta greddutímabili hjá fiskunum... ( Líneik var að spá í að skíra fiskanna Heiðu og Hafliða ?)

 

08. febrúar 2009 klukkan 22:25
Harpa Halldórsdóttir
6 athugasemdir
02febrúar

Innkaup

Vá hvað það er langt síðan ég fór á þorrablót...dauðlangar á þorrablót, datt nefnilega út í búð ( arg hvað mér finnst leiðinlegt í búð ) í dag...gerði það reyndar af bráðri nauðsyn að fara í Krónuna að versla í matinn, phúha ætla ekki að tjá mig á opinberum vef hvað þessir 5 innkaupapokar kostuðu, sef ekki í heila viku út af því...en ég er komin út í allt annað en það sem ég byrjaði að tala um.

Já þorrablót...þegar ég var út í búð, sá ég ekkert nema þorramat...þið þekkið þetta..sviðasultu,súra punga, rófustöppu,hangikjöt, svið, hákarl. harðfiskur,lundabaggar,bringukollur, súr hvalur, súrt slátur og de hele...allt fallega raðað upp á söluvænlegan hátt :O) nema hvað ég gægist ofan í kælikistuna og hugsaði með mér " hmm kannski ég gleðji Óla og mig með því að kaupa smá sviðasultu" en þegar ég teygði mig í sviðasultu pakkann, rak ég augun í verðmiðann á honum og hrökklaðist til baka !!!

Kræstur hvað á að taka mann í rassgatið með allt, en smá flís af dauðu soðnu rolluandliti kostaði nærri 1200 krónur, við erum að tala um nokkra munnbita, ég vil nú alls ekki minnast á hvað hákarlinn kostaði eða súru pungarnir, en þetta millifótakonfekt fer ekki inn á milli minna vara í ár !!!

Ég steinhætti alveg við að kaupa e-h sem ekki var á mínum tossalista, hér með held ég mig algjörlega við listann, nóg er nú samt á listanum !!!

02. febrúar 2009 klukkan 22:51
Harpa Halldórsdóttir
3 athugasemdir
29janúar

Kominn tími

Á nýtt blogg, ferlega líður tíminn e-h hratt..janúar að verða búinn og Björg,Pabbi,Hrefna,Kristín Hulda ásamt fullt af öðru fólki orðið árinu eldra nú í janúar. Til lukku þið öll.

Ég er ennþá að reyna að ákveða hvað ég á að gera við afmælispeninginn minn sem ég fékk í nóvember frá mömmu og pabba og systkinum + mökum, þá kasólétt...hmmm dauðlangar í nýjar buxur en fock hvað þetta er ógeðslega dýrt allt saman, tími því ekki og held því fast í peninginn, en það sem mig langar mest af öllu er að fá flugfar og lestarfar fyrir peninginn og kíkja út með Hafliða til vinkonu minnar til 20 ára..finnst svo skrýtið að hún sé ekki búin að sjá prinsinn !
Sjáum til, annað hvort lagast ástandið í þjóðfélaginu og ég fæ e-h fyrir peninginn eða ég skelli mér bara í lit og klippingu !! :O) kostar náttúrulega heilan helling hahaha

Stjórnin fallin og þetta var fyrirsögnin á Ekstra Bladet í dag "Lesbisk stewardesse skal redde Island" en hér er hægt að lesa í heild sinni greinina. 
Hvernig ætli þetta verði hér á þessu blessaða landi ? Spáið bara í það, næstu mánuði, næsta ár ?? Hve langt horfið þið t.d fram í tímann ? 
Ég er ekki hrifin af því að fá nýja stjórn inn núna, vildi að þessi yrði fram að kosningum og reyndi að klára hlutina sem lágu fyrir núna, finnst þetta verða svona sandkassaleikur.."hver vill vera memm! " og ekkert verða gert í kjölfarið. 
Og hvað er þetta með matarverðið !!! Kræstu hvað ég hef ekki efni á neinu út í búð núna, verð virkilega að passa allt sem er keypt inn á þetta heimili, það má bara ekki neitt bruðl, verð að breyta um tegundir á öllu, pasta,hrísgrjónum...er alltaf að leita að því ódýrasta...verð að kýla matarkostnað hér niður. 

En allt getur maður ef viljinn ef fyrir hendi ikke ?? 
Knús á ykkur öll, heyrumst, sjáumst og brosum :O)  

29. janúar 2009 klukkan 16:58
Harpa Halldórsdóttir
4 athugasemdir
21janúar

Ég fæ kjánahroll !!!

Vitið þið, að eins og ég er hlynnt mótmælum og hef verið alla tíð, finnst gott mál að mótmæla og má alveg halda því áfram með t.d þessum hávaða eins og í gær, mætti sjálf á einhver mótmælin kasólétt niður á Austurvöll.
Þá finnst mér þessi mótmæli vera komin út í algjört rugl, þau eru farin að missa mark hjá mörgum og þá sérstaklega vegna skrílsláta og eignarspjalla sem virðast helst vera núna þ.e að þetta gangi helst út á að skemma e-h, slasa fólk, kasta landbúnaðarvörum í hús og lögreglu og svo er fólk rosalega hissa þegar lögregla beitir piparúða eða kylfum ! Við hverju má búast ef að skipunum lögreglu er ekki hlýtt ? Að allir fái sleykjó ? Þegar búið er að biðja fólk um að yfirgefa svæði á að hlýta því annars má búast við afleiðingum ...sem voru í formi piparúða, handtöku og beitt var kylfum.

Af hverju er ekki hægt að mótmæla án þess að slasa fólk, eyðileggja, og skíta út ? Sko í mínum huga þá á þjóðin t.d Alþingishúsið ekki ríkisstjórnin og finnst mér þetta bara vera vanvirðing við okkur, fólkið í landinu ofan á þessa fjárhagskreppu sem allir eru að mótmæla að drulla út Alþingishúsið okkar.
Annað er að það er svo greinilegt verið að bíða eftir því að lögreglan ýti við þeim mótmælendum sem voru þarna á Austuvelli í gær og svo kemur leikritið eins og hjá virkilega góðum fótboltamanni " það er byrjað á því að fleygja sér í götuna og æpa upp áiii þú brjálæðingur ég var bara að labba hérna framhjá er ekkert frelsi hér á þessu andskotans landi ? áiii ég er örugglega fótbrotinn,handleggsbrotinn og hér koma svo upp fjölmörg "kannski" og "örugglega" brotadæmi eða slasaður af einhverju leyti ( kannski hefur þessi öfgasinnaði stúdent tekið kúrs í beinafræði eða læknisfræði að e-h leyti ) , síðan kemur orðaflaumurinn.... fasisti, lögreglusvín, þetta er lögregluríki ofrv !!!

Ef þessi einstaklingur er svo skoðaður þá hlýddi hann ekki fyrirskipan lögreglu um að yfirgefa staðinn og hlaut því smá stjak í hann og á endanum þá fékk við komandi að kenna á því að honum var virkilega ýtt í burtu og aumingja mótmælandinn féll niður á þennan leikræna hátt. Hver tekur mark á svona mótmælum ???

 

Skoðum annað, þessi blessuðu mótmæli voru skipulögð af Öfgasinnuðum stúdentum, hvaða hópur er það ? Er þetta e-h fag í Háskólanum "Öfgasinnun 203" ? Þá er amk miðað við hegðun margra greinilegt að sumir stunda skólann stíft.

En ég myndi frekar kalla þennan hóp "Öfgasinnaðir iðjuleysingar" og það sem gerðist á haustmánuðum í Írak þ.e skó var kastað í átt að Bush fyrrerandi forseta Bandaríkjanna og hann kallaður hundur en það er svo meðal araba að skókast sé tákn um mikla vanvirðingu, forn leið til að sýna mikla vanþóknun og er siður í Mið- Austurlöndum.
Við getum ekki tekið e-h svona beint upp eftir annari þjóð og reynt að láta það passa hér inn í okkar siði eða atburði, frekar kjánalegt og er verið að sækja vatnið aðeins of langt.Ef mótmælendur gera sér ekki grein fyrir því, þá hefur skókast ekkert að segja hér á landi það er engin merking á bak við að sýna skósólana eða kasta skóm í Alþingishúsið ( fyrir utan að þetta er bara rusl á götunni ) , þeir sem telja þetta skila einhverju hér á landi ættu kannski að dusta rykið af "menning á milli landa" bókinni eða stúdera menningarmismuninn.

 

Mótmælum markvisst eins og fólk sem vill láta hlusta á sig, ekki eins og þeir sem hafa bara ánægju af því að skíta út og eyðileggja. . og biðja um vesen og handtöku og er stolt af því að vera með nokkra marbletti eftir mótmælin !

21. janúar 2009 klukkan 09:02
Harpa Halldórsdóttir
3 athugasemdir
14janúar

Komin heim

Já komin heim eftir góða ferð vestur á firði...umdaaa hvað það var gott að komast vestur í faðm fjallra blárra og allra þar. Áttum góða stund ( fyrst ) með Þórdísi,Hössa og dætrum á Ísafirði, kíktum í heimsóknir og göngutúra út í bæ, fórum svo inn í Ögur til mömmu og pabba og fékk pabbi að sjá Hafliða í fyrsta sinn....það voru allir rosalega glaðir með bæði nafn og prinsinn sem auðvitað sjarmaði alla upp úr skónum.

Heimferðin gekk mun hægar en ég átti von á ! En á föstudeginum þegar við áttum flug, var ekki snjór á jörðu, hiti í lofti og logn...en á 5 mín kyngdi niður snjó og gerði svo dimmt að vélin gat ekki lennt...og ekki heldur á laugardegi eða sunudegi vegna élja og ókyrrðar í lofti ! Arg ég var að bera töskur og börn inn og út úr bíl alla helgina og við lágum svo upp á Þórdísi og Hössa...enda yndislegt að vera hjá þeim..þúsund þakkir fyrir mig og börnin elskurnar :O) en komust svo suður á mánudegi, Líneik var svo glöð að komast loksins í skólann, hún átti að taka próf þá en komst ekki í það og var miður sín yfir því, en fékk að taka prófið á þriðjudegi í staðinn.

Nú er bara rútínan og Líneik er svo glöð með að vera komin í hana, við Hafliði erum að mynda þessa rútínu svona smátt og smátt en prinsinn er alveg að verða 8.vikna ( næsta mánudag ) og orðinn 4920 gr og 57 cm rosalega flottur strákur :O)
14. janúar 2009 klukkan 21:10
Harpa Halldórsdóttir
5 athugasemdir

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Harpa Halldórsdóttir
  • Annað: Brosið, lífið er auðveldara þannig ;O)

Hvað er klukkan í Danmörku ;O)

Leit