Ég hef misst manndóminn !!!

Held að ég hafi misst manndóminn, eða get ég það ? Þar sem ég er stelpa ?? Hvað með það, er í bévítans vandræðum varðandi áframhaldið hjá mér...
HÍ hefur gefið lokasvar varðandi mat á náminu frá Danaveldi...af 120 ECTS einingum sem ég lauk þar eða Diploma námi, fæ ég 20 ECTS einingar metnar inn í HÍ ( og á þá eftir að gefa svar með hvort ég fái 3 einingar metnar inn frá HR )
Ég er búin að jafna mig á þessum 20 einingum, en var argandi reið og drullu sár fyrst eftir að ég fékk tölvupóst varðandi matið, skiljanlega ég lauk 2 ára námi úti í Danmörku með tilheyrandi námslánasöfnun og skulda þau ennþá...ég hefði alveg eins getað verið á 2 ára fyllerí...hefði skilað mér jafn miklu !!!

En málið er að ég hefði alveg viljað fá þetta mat í gegn örlítið fyrr, ég gerði ráðstafanir fyrir því og byrjaði að garfa í þessu í mars, en come on korter í að skólinn byrjar fæ ég loksins úr þessu mati...
Og Hafliði er byrjaður í aðlögun á leikskólanum, hvað á ég að gera hugsa ég alla daga núna...á ég að kyngja helvítis stoltinu og byrja á grunninum aftur !? Eða á ég að hætta með Hafliða á leikskólanum og fara að leita að vinnu ? Leikskólinn er sko hjá HÍ þannig að hann getur ekki haldið áfram þar ef ég hætti við HÍ.... akkúrat þess vegna hefði ég viljað vita þetta bara fyrir 3 vikum !! !!! ARG...
Er svo að reyna að vera skynsöm, en ástandið í þjóðfélaginu er ekki alveg til þess að hrópa húrra yfir !!

Já þetta eru spökuleringar helgarinnar, því skólinn byrjar á mánudaginn og Hafliði er að verða búinn í aðlöguninni, ég er bókalaus og veit ekki alveg hvernig stundataflan verður, get skráð mig úr einhverjum fögum og í önnur !!!

Leggst undir feld og held ég að þurfi heila rauðvínsflösku með til að finna út úr þessu !!!

Maja Mist innilega til hamingju með fyrsta árið þitt, það hefur verið viðburðarríkt og lærdómsríkt...knús og kossar til þín á Fynsvej :O)
29. ágúst 2009 klukkan 20:41
Harpa Halldórsdóttir
Björg skrifar ...
Úff hvað ég skil þig...þetta eru stór gatnamót sem þú stendur á!
Ég væri alveg jafn fúl og sár yfir að fá svona lítið metið inn af náminu hér og ömurlegt að hugsa til þess að þurfa að sitja sumt af þessu aftur! Arg...ég myndi fara og pissa á hurð aðalinngangsins í HÍ...hhaha.

Endilega skelltu þér á eina flösku og athugaðu hvort hún vísi veginn ;) Það hlýtur að rætast úr þessu dúllan mín ;)

Takk fyrir kveðjuna til Maju...það er sko mikið og margt sem hún hefur lært á þessu ári!
01. september 2009 klukkan 14:05
fanney skrifar ...
alltaf gaman að lesa bloggið þitt
19. september 2009 klukkan 19:32

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Harpa Halldórsdóttir
  • Annað: Brosið, lífið er auðveldara þannig ;O)

Hvað er klukkan í Danmörku ;O)

Leit