6.mánuðir

Já 6.mánuðir eru liðnir frá fæðingu Hafliða, vá hvað þessi tími flýgur áfram...en prinsinn er ennþá afskaplega rólegur eins og Líneik var þegar hún var lítil...hann er duglegur að dunda sér og elskar að fara í sund, en við vorum að ljúka 5.vikna ungbarnasundi...vonandi getum við farið á framhaldsnámskeið.

Annars er allt rólegt hérna hjá okkur, Líneik nýbúin að eiga 12.ára afmæli og var voðalega ánægð með það allt og lífið gengur sinn vanagang...vona að við fáum gott sumar í ár, þetta er fyrsta sumarfríið mitt í 4 ár !!!
Annars er ég búin að sækja um í HÍ fyrir haustið og vonandi gengur það allt saman eftir.
Hafliði nýfæddur
og Hafliði 6.mánaða .O)


24. maí 2009 klukkan 09:53
Harpa Halldórsdóttir
Björg skrifar ...
Líst ofsalega vel á skóla njóla...spennandi!

Er þér svo innilega sammála með það hve tíminn flýgur...finnst svo óraunverulegt að það sé komið hálft ár síðan ég var á Klakanum og beið fæðingu Hafliða óþreyjufull :)
Sætar myndirnar af Krúttulíusi...ekkert smá sem þessi kríli breytast á bara nokkrum mánuðum!
24. maí 2009 klukkan 13:14
Halla María skrifar ...
Ekkert smá fljótur að líða þessi blessaði tími. Sætar myndir af sæta frænda mínum:-)
25. maí 2009 klukkan 20:57
Kristín skrifar ...
Vona að þú fáir inn elsku Harpa mín og þetta er flott hjá þér, það er um að gera að læra þegar ástandið er svona!! Kossar og knús á ykkur öll.
12. júní 2009 klukkan 16:45

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Harpa Halldórsdóttir
  • Annað: Brosið, lífið er auðveldara þannig ;O)

Hvað er klukkan í Danmörku ;O)

Leit