25desember

Gleðileg jól / Gledileg jul...

Halló elskurnar mínar, ég vildi bara kasta hér inn smá jólakveðju, vona að þið hafið haft það æðislega gott í gærkvöldi :O)
Ég bakaði ekki 10 sortir eða þreif allt hátt og lágt, heldur tók á móti jólunum með æðruleysi heheheheheh.... hafði það svo gott og tókum góðan tíma í pakkaopnun ( ég re
yni að treina þetta fyrir Líneik ) en svo þurfti að koma Hafliða í rúmið, hann var búinn á því kl 21.00
Hann var rosalega hissa á öllum pökkunum, hafði samt lúmskt gaman af því að sjá systur sína rífa upp pakkanna og var svo sáttur við sitt dót :O)
Skellti nokkrum myndum inn frá aðfangadagskvöldi.....
Þúsund þakkir fyrir mig og mína.....
25. desember 2009 klukkan 21:39
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
02nóvember

ER það satt ???

Er bloggið dautt ??? Svona svipað og pönkið hér um árið, er Facebook eða fjésbókin búin að yfirtaka alla bloggara og þá og meðal mig ??
Vil ekki alveg játa það amk ennþá, hef gaman að því að skrifa allskonar pælingar hér niður, en verð að viðurkenna það að síðustu mánuðir hafa verið frekar andlausir....
EN BLOGGIÐ ER EKKI DAUTT.......
02. nóvember 2009 klukkan 11:01
Harpa Halldórsdóttir
2 athugasemdir
12október

Koma dagar koma ráð...

Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór ??? Munið þið eftir þessari spurningu frá frænkum, frændum, ókunnugum ásamt foreldrum ???

En ég veit að svarið var ekki " þegar ég verð 35.ára ætla ég að verða atvinnulaus " :O)

Er ennþá í atvinnuleit og sæki um störf sem óð væri, ekkert hefur það skilað sér ennþá en örvænta þó ekki.....annað hvort er ég ofmenntuð eða vanmenntuð þannig að ég verð líklega að bæta við mína menntun....og dauðlangar í það sem hefur alla tíð heillað mig, ljósmyndun, grafíska hönnun ofl í þá áttina .

Skoða þetta allt saman með opnum huga, en munið að í kreppunni eru einmitt tækifærin :O)

12. október 2009 klukkan 12:02
Harpa Halldórsdóttir
1 athugasemd
06október

20.ár...talandi um að tíminn fljúgi !!

Nú stend ég á flottum tímamótum, en í dag eru liðin 20. ár frá því ég kynntist Óshlíðinni af eigin raun, og hugsa ég alltaf til þess 7.október ár hvert og þakka fyrir að hafa fengið að lifa þessi óskemmtilegu kynni okkar af.
Ég ber virðingu fyrir hlíðinni, ógnvænlega kannski, en flott er hún þegar maður stendur á veginum og starir upp alla hlíðina, þar fær maður það á tilfinninguna að hlíðin sé að detta yfir mann, sem hún gerir reyndar stundum eins og aðfaranótt 7.okt 1989 þegar ég var  á rúntinum ( sem farþegi aftur í ) með Jósep bakara og Báru Lind frá Ísafirði, ætluðum bara að taka smá rúnt út í Bolungarvík, á miðri hlíðinni féll ofan á okkur grjót sem talið var að hefði verið á við tonn að þyngd með þeim afleiðingum að bíllinn lagðist saman og ég festist inn í bílnum, man lítið eftir þessu, sem betur fer slösuðust Bára Lind og Jósep ekkert.

Ég endaði í heilauppskurði til að tappa smá blóði úr kollinum, var með brotna höfuðkúpu ásamt hálsliðum og var í 7 daga í raun í algjörum lyfjarússibana og man næstum ekkert eftir mér. Jafnaði mig samt ótrúlega fljótt.
 
Ég var heppin og á 20. ára lifandi afmæli í dag :O)

Fyrir þá sem ekki vita þá er Óshlíðin vegur sem liggur í hlíðinni milli Hnífsdalar og Bolungarvíkur, og var þessi vegur fyrst opnaður 1949, formlega jú 1950 með því að Sigurður Bjarnason frá Vigur ók veginn fyrstur manna ásamt fleirum merkismönnum.

Rosaleg samgöngubót á sínum tíma, en það er fyrst nú sem næsta samgöngubót er að verða að veruleika þarna, Óshlíðargöngin eru í vinnslu.

Vegurinn er stórhættulegur, bæði vegna grjóthruns og snjóflóða, en þegar ég var þarna á ferð með fyrrgreindum afleiðingum var hlíðin óupplýst en á henni voru tveir skálar sem voru ætlaðir sem skjól fyrir grjóthruninu. Þeir eru ófáir sem hafa beðið lægri hlut gagnvart hlíðinni og bið ég ykkur um að muna eftir þeim, þetta er ekki síst skrifað í þeirra minningu.
Sjá hér þennan link

Í dag er verið að gera göng þarna í gegn og er staðan á þeim hér:

bb.is | 05.10.2009 | 15:14Hægur gangur í síðustu viku

Gröftur Óshlíðarganga gekk fremur hægt í síðustu viku. Frá Hnífsdal voru sprengdir 45 metrar og er heildarlengdin þeim megin orðin 2.467 metrar. Frá Bolungarvík voru einungis sprengdir 10 metrar í setbergi og er heildarlengdin þeim megin orðin 2.323 metrar. Samtals er því búið að sprengja 4.790 metra eða tæplega 93% af heildarlengd ganganna. Eftir er að sprengja 366 metra.

06. október 2009 klukkan 22:31
Harpa Halldórsdóttir
2 athugasemdir
26september

Táknmál ????

Skemmti fólki heilmikið síðustu daga með málróm mínum ( reyndar á minn kostnað ), haldið þið ekki að ég hafi verið ( að mínu mati ! ) svona helvíti sexý og rám...alveg eins og Janis Joplin .....grrr......en fór bara overboard í þessu eins og flestu og missti sem sagt röddina, kom rétt upp einu og einu orði !!!!
Talaði mjög hátt ( hélt ég ) og það heyrðist ekki neitt, getið þið ímyndað ykkur hvað ég var pirruð arg...eldrauð í framan að kalla upp orðum, en það eina sem heyrðist var hvískur og smá stelpulegt hjal, eða ég breyttist allt í einu í róna og drafaði með hræðilegum róm datt síðan niður í unglingadrenginn sem var í nýbyrjaður í mútum arg arg..............

Eftir að hafa verið svona í 4 daga varð ég að finna mér heiti á þessum persónum mínum sem hæfði þessum margbreytilega persónuleika sem virtist allt í einu POMPA svona upp með þessari hræðilegu hálsbólgu og hæsi.... og stefni ég nú að skrifa sögu þessara 4 persóna.....ætli ég klári hana ekki bara fyrir jólin !!!!

Og ef einhver þarna úti heldur að ég sé að klikkast .....mhúhahhahahah þá er ég á leið í kaffi til hins sama aðila :O)

26. september 2009 klukkan 21:10
Harpa Halldórsdóttir
1 athugasemd
29ágúst

Ég hef misst manndóminn !!!

Held að ég hafi misst manndóminn, eða get ég það ? Þar sem ég er stelpa ?? Hvað með það, er í bévítans vandræðum varðandi áframhaldið hjá mér...
HÍ hefur gefið lokasvar varðandi mat á náminu frá Danaveldi...af 120 ECTS einingum sem ég lauk þar eða Diploma námi, fæ ég 20 ECTS einingar metnar inn í HÍ ( og á þá eftir að gefa svar með hvort ég fái 3 einingar metnar inn frá HR )
Ég er búin að jafna mig á þessum 20 einingum, en var argandi reið og drullu sár fyrst eftir að ég fékk tölvupóst varðandi matið, skiljanlega ég lauk 2 ára námi úti í Danmörku með tilheyrandi námslánasöfnun og skulda þau ennþá...ég hefði alveg eins getað verið á 2 ára fyllerí...hefði skilað mér jafn miklu !!!

En málið er að ég hefði alveg viljað fá þetta mat í gegn örlítið fyrr, ég gerði ráðstafanir fyrir því og byrjaði að garfa í þessu í mars, en come on korter í að skólinn byrjar fæ ég loksins úr þessu mati...
Og Hafliði er byrjaður í aðlögun á leikskólanum, hvað á ég að gera hugsa ég alla daga núna...á ég að kyngja helvítis stoltinu og byrja á grunninum aftur !? Eða á ég að hætta með Hafliða á leikskólanum og fara að leita að vinnu ? Leikskólinn er sko hjá HÍ þannig að hann getur ekki haldið áfram þar ef ég hætti við HÍ.... akkúrat þess vegna hefði ég viljað vita þetta bara fyrir 3 vikum !! !!! ARG...
Er svo að reyna að vera skynsöm, en ástandið í þjóðfélaginu er ekki alveg til þess að hrópa húrra yfir !!

Já þetta eru spökuleringar helgarinnar, því skólinn byrjar á mánudaginn og Hafliði er að verða búinn í aðlöguninni, ég er bókalaus og veit ekki alveg hvernig stundataflan verður, get skráð mig úr einhverjum fögum og í önnur !!!

Leggst undir feld og held ég að þurfi heila rauðvínsflösku með til að finna út úr þessu !!!

Maja Mist innilega til hamingju með fyrsta árið þitt, það hefur verið viðburðarríkt og lærdómsríkt...knús og kossar til þín á Fynsvej :O)
29. ágúst 2009 klukkan 20:41
Harpa Halldórsdóttir
2 athugasemdir
22ágúst

Hygge tími framundan ...

Ohh það er bara huggulegheit framundan, haustið á leiðinni og ég farin að þvo treflanna og gera haust/vetrarklæðnaðinn kláran til brúkunar :O)
Eina sem mig vantar eru nokkur kerti til að kveikja á og þá get ég hygge lidt með kakóbolla í hönd :O)

Líneik klárar 7.bekk í Korpuskóla en svo veit maður ekkert hvar hún verður 2010 !! Korpuskóli er ekki með áframhald fyrir krakkanna og þyrfti hún þá að fara út í Víkurskóla til að klára skylduna, nei segi ég enda er íbúðin á sölu og vona ég svo innilega að e-h ákveði bara að kaupa þessa blessuðu íbúð fyrr en seinna, en það getur jú auðvitað verið þannig að hún verði á sölu næstu 5 ár, markaðurinn er alveg ferlegur.

Fæ stundatöflu og vonandi fögin á hreint í næstu viku, fer þá á fund deildarstjóra viðskiptadeildar varðandi matið á fyrra námi í Danmörku...hlakka bara til að sjá hvað ég þarf að eyða í bókakostnað ;O) alltaf gott að hlakka til einhvers hehehehe

Svo þegar ég verð stærri ætla ég að klára ljósmyndanámið, já og hana nú bara svo þið hafið það á hreinu :O)
God weekend...
22. ágúst 2009 klukkan 13:00
Harpa Halldórsdóttir
3 athugasemdir
14ágúst

Sumarstiklur....

Sumarið að líða undir lok, og það sem maður hefur notið þess, ó já...
Smá sumarannáll hér:
2 vikur heima í Danmörku ( he he he...alltaf á ég heima þar ó já ) í frábærum hita og svita, Hafliði byrjaði að skríða áfram þar, hafði áður skriðið aftur á bak. Hittum fullt af góðum vinum og nutum lífsins í rólegheitunum þar.
Það sem ég sakna Kolding og allra minna vina þar.
Eftir að heim var komið þá var kíkt í heimsókn í bústað og síðan brunað vestur í Ögur, Ögurball, Kirkjuafmæli, göngutúrar ásamt slatta af afslöppun ásamt að hitta góða vini fyrir vestan var helst það sem ég tók mér fyrir hendur, endaði á því að ég og púkarnir vorum þar í 3.vikur enda er ég atvinnulaus og hafði ekkert að gera suður hehehe, yndislegt að vera hjá mömmu og pabba þennan tíma, þessi tími kemur ekki aftur það eitt veit ég.
Haustið leggst vel í mig, ég sest á skólabekk í HÍ, Hafliði á leikskóla og Líneik í 7.bekk í Korpuskóla, nóg að gera og líkleg nóg af bókum að kaupa :O)
Hlakka bara til enda er uppáhalds árstíðin mín framundan.......og veðrið er bara æðislegt, logn ( jú víst í Reykjavík ) og 16 til 18°c hiti á hverjum degi.Vona að haustið verði svona áfram

Kastaði nokkrum sýnishornamyndum inn í myndaalbúmið....

Þar til næst turilú...

14. ágúst 2009 klukkan 22:46
Harpa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
13júní

Nýtt blogg !!

Mikið rosalega er maður orðinn latur að blogga, ekki það að ég sé orðin orðlaus eða kjaftstopp mhúhahahah verð það líklega seint eða aldrei :O)
Virðist sem maður segir bara flest sem segja þarf á facebook nú orðið..

En lífið gengur sinn vanagang...stoltið að drepa mig vegna minna barna...Líneik fékk glimrandi einkunnir og Hafliði stækkar og uppgvötar e-h nýtt á hverjum degi, er næstum farinn að geta setið sjálfur og farinn að borða.

Auðvitað er þetta þjóðfélag og ástandið hérna að gera út af við mig og flesta í kringum mig..fleiri og fleiri sem ég þekki eru orðnir atvinnulausir og eru víst 3 fjölskyldur á dag sem flytja erlendis, ég er ekki hissa..framundan eru skattahækkanir, skóladagur styttur ekki skólaárið og það þýðir að fólk þarf lengri gæslu = aukin kostnaður á heimilin, færri skólaliðar = meiri stríðni og einelti í frímínútum ( sem hefur verið vandamál en verið að reyna að ná árangri í að ná niður ) æi það er svo margt sem er að hækka, leikskólagjöld ofl ofl...tala nú ekki um bensínið og matinn.
Er samt hætt að horfa á fréttir, nenni því ekki og það er svo neikvætt að horfa á þær...

Er ennþá að bíða eftir geta metið námið mitt úr IBA inn í HÍ,sótti líka um í HR og verð að skila einkunarblöðum úr IBA þar inn á mánudag.... sótti samt um eina vinnu í gær..bara af því bara :O) heillaði mig en hvað veit maður svo sem.

Þar til næst...

13. júní 2009 klukkan 21:57
Harpa Halldórsdóttir
1 athugasemd
24maí

6.mánuðir

Já 6.mánuðir eru liðnir frá fæðingu Hafliða, vá hvað þessi tími flýgur áfram...en prinsinn er ennþá afskaplega rólegur eins og Líneik var þegar hún var lítil...hann er duglegur að dunda sér og elskar að fara í sund, en við vorum að ljúka 5.vikna ungbarnasundi...vonandi getum við farið á framhaldsnámskeið.

Annars er allt rólegt hérna hjá okkur, Líneik nýbúin að eiga 12.ára afmæli og var voðalega ánægð með það allt og lífið gengur sinn vanagang...vona að við fáum gott sumar í ár, þetta er fyrsta sumarfríið mitt í 4 ár !!!
Annars er ég búin að sækja um í HÍ fyrir haustið og vonandi gengur það allt saman eftir.
Hafliði nýfæddur
og Hafliði 6.mánaða .O)


24. maí 2009 klukkan 09:53
Harpa Halldórsdóttir
3 athugasemdir

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Harpa Halldórsdóttir
  • Annað: Brosið, lífið er auðveldara þannig ;O)

Hvað er klukkan í Danmörku ;O)

Leit